Erlent

Strauss-Kahn gisti í fangaklefa í nótt

Dominique Strauss-Kahn fyrrum forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gisti í nótt í fangaklefa á lögreglustöðinni í Lille í Frakklandi.

Strauss-Kahn var handtekinn af frönsku lögreglunni og færður til yfirheyrslu í gærdag. Hann er grunaður um tengsl við vændiskvennahring en nokkrar vændiskonur hafa sagt í yfirheyrslum að þær hafi átt kynmök við Strauss-Kahn í kynlífsveislum á lúxushótelum í Frakklandi.

Yfirheyrslur yfir Strauss-Kahn stóðu fram á nótt og að því loknu ákvað lögreglan að hafa hann í haldi í 24 tíma í viðbót.

Samkvæmt frönskum lögum getur lögreglan þar í landi haft menn í haldi í allt að 48 klukkutíma án þess að þurfa úrskurð dómara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×