Erlent

Eftirlitsmenn fengu ekki aðgang að íranskri herstöð

Stjórnvöld í Íran höfnuðu ítrekað beiðni eftirlitsmanna frá Alþjóða kjarnorkumálastofnuninni um að fá að skoða herstöð skammt frá Teheran en talið er að herstöðin gegni lykilhlutverki í kjarnorkuáætlunum Írana.

Sökum þessa telja eftirlitsmennirnir að þeir hafi farið erindisleysu til Íran enda tókst þeim heldur ekki að semja við Írani um ágreiningsmál vegna kjarnorkuáætlana þeirra.

Í herstöðinni sem eftirlitsmennirnir fengu ekki aðgang að er talið að framleiddar séu langdrægar eldflaugar sem flutt geta kjarnorkuvopn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×