Erlent

Íhuga að senda vopn til uppreisnarmanna í Sýrlandi

Bandarísk stjórnvöld íhuga nú að útvega uppreisnarmönnum í Sýrlandi vopn í baráttu þeirra við stjórn einsræðisherrans Bashar al-Assad.

Hingað til hafa Bandaríkjamenn lagt áherslu á að leysa vandamálin í Sýrlandi eftir diplómatískum og pólitískum leiðum en slík hefur engan árangur borð enn sem komið er.

Talsmenn Hvíta hússins og bandaríska utanríkisráðuneytisins segja að vopnasendingar til uppreisnarmanna séu nú til skoðunnar fari svo að aðrar leiðir dugi ekki til að binda enda á átökin í Sýrlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×