Erlent

40 látnir eftir lestarslys í Argentínu

Frá vettvangi í Buenos Aires í Argentínu
Frá vettvangi í Buenos Aires í Argentínu mynd/AP
Að minnsta kosti 40 létust og yfir 500 slösuðust þegar farþegalest fór út af sporinu í Buenos Aires, höfuðborg Argentínu, í dag.

Talið er að lestin hafi farið af teinunum við lestarstöð í hjarta borgarinnar og skollið á járnbrautarpallin þar sem fjöldi fólks beið.

Lestin mun hafa verið á 20 kílómetra hraða þegar atvikið átti sér stað.

Lestarstjórinn var fluttur á sjúkrahús ásamt farþegum - þó eru enn margir fastir í vögnunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×