Erlent

Fágæt hasarblöð metin á 2 milljónir dollara

Forsíða hasarblaðsins Action Comics No. 1 frá árinu 1938.
Forsíða hasarblaðsins Action Comics No. 1 frá árinu 1938. mynd/AP
Stærðarinnar safn hasarblaða fer brátt á uppboð í New York í Bandaríkjunum. Blöðin verða að öllum líkindum slegin á tvær milljónir dollara.

Michael Rorrer datt ekki í hug að hasarblöðin sem hann fann í kjallara ömmu sinnar væru í raun fjársjóðskista lúðans. Hasarblöðin voru þó afar svöl sagði Rorrer en honum grunaði ekki að þau væru jafn verðmæt og raun bar vitni.

Það féll í hlut Rorrers að ganga frá eigum ömmu sinnar eftir að hún féll frá. Þegar hann gramsaði í kjallara hennar uppgötvaði hann kassa með 345 hasarblöðum.

Seinna komst Rorrer að því að blöðin höfðu verið í eigu frænda síns sem hafði tekist að safna nokkrum af fágætustu og dýrustu hasarblöðum veraldar.

„Þetta er ólýsanlegur fundur," sagði Lon Allen hjá uppboðshúsinu Heritage Auctions í New York. „Við héldum að slík myndablaðasöfn væru í raun ekki til lengur."

mynd/Ap
Af þeim 345 hasarblöðum sem voru í kassanum eru 44 talin fágæt. Á meðal þeirra eru Captain America No. 2 frá 1941 og hið goðumlíka Action Comics No. 1 en þar birtist Súpermann í fyrsta sinn.

„Frá sagnfræðilegu sjónarmiði eru blöðin ómetanleg," sagði J.C. Vaughn hjá útgáfufyrirtækinu Overstreet.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×