Erlent

Tveggja daga þjóðarsorg í Argentínu

Cristina Fernandez de Kirchner, forseti Argentínu.
Cristina Fernandez de Kirchner, forseti Argentínu. mynd/afp
Forseti Argentínu lýsti í morgun yfir tveggja daga þjóðarsorg í landinu eftir hörmulegt lestarslys í höfuðborginni Buenos Aires í gær. Fimmtíu manns fórust í slysinu og á sjöunda hundrað manna slösuðust.

Cristina Fernandez de Kirchner, forseti landsins, sagði í yfirlýsingu að hugur og hjörtu landsmanna væru nú með ættingjum og vinum þeirra látnu og slösuðu.

Slysið varð með þeim hætti að lest kom á of miklum hraða inn á lestarstöð á háannatíma og lenti af miklum krafti á fyrirstöðu við enda lestarteinanna.

Þetta er mannskæðasta lestarslys í Argentínu frá árinu 1970.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×