Erlent

Magnaðar myndir af eyðileggingu brúar í Ohio

Ótrúlegar myndir náðust af því þegar hengibrú var sprengd í loft upp í Ohio í Bandaríkjunum. Brúin hafði staðið í 83 ár en féll á 9 sekúndum.

Brúin var rúmlega 450 metrar að lengd og þurfti tæp 70 kíló af sprengiefni til að fella hana. Sprengiefninu var komið fyrir á 136 stöðum á brúnni.

Hver sprenging stóð yfir í 0.35 sekúndur og voru einungis níu millisekúndur á milli sprenginga.

Hægt er að sjá myndband af sprengingunni hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×