Erlent

al-Qaeda lýsir yfir ábyrgð á voðaverkum í Írak

Frá vettvangi í Írak í gær.
Frá vettvangi í Írak í gær. mynd/AP
Hryðjuverkasamtökin al-Qaeda hafa lýst yfir ábyrgð á hrynu sprengju- og skotárása í Írak í gær. Alls létust 55 manns í árásunum en þær áttu sér stað við lögreglustöðvar og öryggistálma í hverfum Shia-múslima. Þá særðust 225 í árásunum.

Í yfirlýsingu frá al-Qaeda kemur fram að árásirnar hafi verið hefnd fyrir kerfisbundnar ofsóknir á hendur Sunni-múslima í Írak.

Talið er að yfirvöld í Írak hafi tekið 68 Sunni-múslima af lífi það sem af er ári.

Voðaverkum hefur fjölgað mikið síðan bandarískir hermenn voru dregnir úr landinu í desember á síðasta ári og óttast yfirvöld í Írak að ný bylgja hryðjuverkaárása sé nú að hefjast í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×