Erlent

Óeirðir eftir að Nike kynnti nýja skó

Nike All star körtuboltaskórnir eru afar eftirsóttir.
Nike All star körtuboltaskórnir eru afar eftirsóttir. mynd/Nike
Rúmlega eitt hundrað lögreglumenn voru kallaðir til þegar óeirðir brutust út í Orlando í Flórída. Fólkið gat ómögulega beðið eftir miðnæturopnun skóbúðar sem seldi nýjustu körfuboltaskóna frá Nike.

Fólkið var beðið um að bíða handan götunnar þangað til að búðin opnaði. Nokkrir lögreglumenn voru á staðnum. Það þurfti síðan að kalla á óeirðarlögreglumenn þegar fólkið hljóp óvænt yfir götuna og streymdi í áttina að skóbúðinni.

Lögreglumenn í óeirðarbúningum hótuðu að nota piparúða á fólkið - það kom þó ekki til þess.

Fólkið beið eftir að klófesta nýjustu Nike körfuboltaskóna, hina svokölluðu Nike Air NBA All-Star Game skó. Skórnir eru afar eftirsóttir og kosta um 220 dollara eða um 30.000 krónur.

Enginn slasaðist í óeirðunum og var miðnæturopnuninni aflýst. Vongóðir kaupendur fóru því heim með sárt ennið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×