Erlent

Veiddi einn stærsta humar veraldar

Eins og sjá má er Rocky ekkert smáræði.
Eins og sjá má er Rocky ekkert smáræði.
Veiðimaður í Maine í Bandaríkjunum klófesti einn stærsta humar sem vitað er um. Blessunarlega fer þessi humar ekki í pottinn.

Humarinn er kallaður „Rocky."

Rocky er rúm tólf kíló að þyngd og 101 sentímetra langur.

Það var rækjuveiðimaðurinn Robert Malone sem veiddi humarinnar. Krabbadýrið festist í rækjuneti Malones og rak hann því upp stór augu þegar humarinn kom upp með netinu.

Malone hafði samband við sædýrasafnið í Maine og var humrinum komið þangað. „Þyngdin í klónun er svo mikið að þær gætu auðveldlega brotið á þér höndina," sagði Elaine Jones hjá sædýrasafninu.

En þó svo að Rocky sé stór og mikill þá á hann enn langt í land með að vera stærsti humar veraldar. Fyrir nokkrum árum veiddu veiðimenn við Nýja-Skotland í Kanada humar sem var tæp 20 kíló að þyngd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×