Erlent

Breiðþota með bilaðan hjólabúnað lenti í Rússlandi

Frá flugvellinum í Sankti Pétursborg. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Frá flugvellinum í Sankti Pétursborg. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Rússnesk flugvél lenti heil á höldnu á flugvellinum í Sankti Pétursborg í dag eftir að hafa misst hjól við flugtak. Lendingin gekk afar vel samkvæmt rússneskum fjölmiðlum.

Breiðþotan var á leið frá Berlín og voru 44 farþegar um borð.

Flugvélin hringsólaði í nokkrar klukkustundir yfir borginni áður en hún lenti og tæmdi eldsneytisgeyma sína.

Rússneskir fjölmiðlar segja að farþegar hafi verið rólegir og að lítil hætta hafa verið á ferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×