Erlent

Starfsmenn NATÓ látnir yfirgefa öll ráðuneyti í Kabúl eftir skotárás

Frá mótmælum í höfuðborg Afganistan, Kabúl.
Frá mótmælum í höfuðborg Afganistan, Kabúl. mynd/afp
Tveir bandarískir foringjar úr sveitum Atlantshafsbandalagsins voru skotnir til bana í innanríkisráðuneytinu í Kabúl, höfuðborg Afganistan í morgun. Æðsti yfirmaður hersveita Nató í Afganistan hefur látið allt starfsfólk sitt yfirgefa öll ráðuneytinu í landinu í öryggisskyni eftir skotárásina. Samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins heyrðust átta skot innan úr ráðuneytinu en hermt er að foringjarnir tveir hafi verið skotnir eftir hávaða rifrildi. Fjöldi manns hefur mótmælt á götum úti í Kabúl síðustu daga eftir að bandarískir hermenn brenndu óvart nokkur eintök af Kóraninum með rusli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×