Borgarstjórinn lýsir yfir stuðningi við sérstöku eftirliti með múslimum 25. febrúar 2012 21:30 „Allt sem lögreglan í New York hefur gert er löglegt, viðeigandi og í samræmi við stjórnarskrána," segir Michael Bloomberg, borgarstjóri New York. mynd/afp
Borgarstjóri New York borgar hefur lýst yfir stuðningi við sérstakt eftirlit lögreglunnar með múslimum til að koma í veg fyrir hryðjuverk. Múslimum í borginni þykir á sér brotið. Michael Bloomberg, borgarstjóri New York, hefur legið undir ámæli í vikunni vegna leynilegs eftirlits lögreglu með moskum og stúdentahópum í borginni og nágrenni hennar, sem fréttastofa AP hefur svipt hulunni af. Alls eru um þúsund starfsmenn í gagnhryðjuverkadeild lögreglunnar, en þeir hafa meðal annars sent flugumenn í háskóla, ljósmyndað moskur og haldið lista yfir fyrirtæki í eigu múslima. Bloomberg lýsti fullum stuðningi við aðgerðirnar til að koma í veg fyrir árásir öfgamanna í vikulegum útvarpsþætti sínum í gær, þrátt fyrir að stjórnmálamenn og stjórnendur háskóla hafi talið þær ganga of nærri einkalífi saklauss fólks. „Allt sem lögreglan í New York hefur gert er löglegt, viðeigandi og í samræmi við stjórnarskrána," segir Michael Bloomberg, borgarstjóri New York. „Við höfum stöðvað 14 samsæri gegn borginni. Öll þessi samsæri voru þróuð af öfgafullum múslímum. Þetta er brot á stjórnarskránni og þetta er óamerískt. Hafa þeir fundið einhvern hryðjuverkamann í þessari mosku? Hvernig líður mér? Eins og það þafi verið brotið á mér, auðvitað. Enginn hefur rétt á að ráðast inn í einkalíf mitt og það hafa þeir gert.," segir Ray Kelly, lögreglustjóri í New York. Múslimar hafa einnig gagnrýnt aðgerðirnar harðlega, en þeir lýstu óánægju sinni víða opinberlega í gær.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Innlent Fleiri fréttir Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjá meira