Erlent

Ökuþór "twittaði" í miðjum kappakstri

Mynd sem Keselowski birti á Twitter.
Mynd sem Keselowski birti á Twitter. mynd/Twitter/Brad Keselowski
Ökuþórinn Brad Keselowski lét sér ekki leiðast þegar Daytona 500 kappakstrinum var frestað tímabundið. Hann dró fram snjallsímann og „twittaði" beint úr bílnum.

Undarlega hélt hann áfram að birta skilaboð á Twitter þegar kappaksturinn hélt áfram. Hann tók það þó fram að ólöglegt væri að „twitta" og aka á sama tíma.

Uppfærslur Keselowski nutu mikillar hylli og fékk hann rúmlega 100.000 fylgjendur á samskiptasíðunni á meðan kappakstrinum stóð.

Hægt er að sjá færslur Keselowski á Twitter hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×