Erlent

Örvæntingafullar húsmæður hittast í réttarsalnum

Allar leikkonurnar fimm sem leika örvæntingarfullar húsmæður í samnefndum sjónvarpsþáttum munu hittast í dómsal í Los Angeles á næstunni.

Þar er hafið mál leikkonunnar Nicollette Sheridan gegn Marc Cherry leikstjóra þáttanna en Sheridan sakar hann um líkamsárás þegar unnið var við upptöku þáttanna árið 2008. Cherry hafi ráðist á sig og slegið sig í andlitið með krepptum hnefa.

Ákveðið hefur verið að kalla allar hinar örvæntingarfullu húsmæðurnar til sem vitni í málinu, það er þær Eva Longoria, Teri Hatcher, Marcia Cross og Felicity Huffman. Þær síðastnefndu hafa áður sent frá sér yfirlýsingu til stuðnings leikstjóranum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×