Erlent

Um 400.000 Danir þjást af þvagleka

Um 400.000 Danir þjást af þvagleka en það sem verra er um 90% þeirra segja ekki fjölskyldu sinni eða vinum frá þessu vandamáli vegna þess hve mikið þeir skammast sín fyrir það.

Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Politiken greinir frá. Fram kemur í könnuninni að þriðji hver Dani sem glímir við þvagleka hafi haldið því leyndi fyrir sínum nánustu í sex ár eða lengur.

Skömmin er svo mikil að þetta fólk vill ekki leita sér aðstoðar við þessum kvilla þótt tiltölulega auðvelt sé að halda þessum kvilla í skefjum, að því er segir í Politiken.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×