Erlent

Interpol stjórnaði samræmdri aðgerð gegn Anonymous

Alþjóðalögreglan Interpol segir að lögreglumenn í fjórum löndum hafi handtekið 25 manns sem taldir eru tilheyra tölvuþrjótahópnum Anonymous.

Um var að ræða samræmda aðgerð á vegum Interpol sem náði til landanna Spánar, Argentínu, Chile og Kólombíu. Auk þeirra 25 sem handteknir voru, var lagt hald á hátt í þrjú hundruð tölvur og farsíma.

Aðgerðin var sett í gang eftir að umfangsmiklar tölvuárásir voru gerðar á vefsíður í Chile og Kólombíu, þar á meðal síður á vegum hins opinbera.

Spænska lögreglan segir að einn þeirra sem handtekinn var á Spáni hafi stjórnað þessum árásum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×