Erlent

Fjármálaráðherrar höfnuðu áætlun Grikkja

Fjármálaráðherrar evrusvæðisins höfnuðu sparnaðar- og niðurskurðaráætlun grískra stjórnvalda á fundi sínum í gærkvöldi. Áætlunin er grundvöllur þess að Grikkland fái nýtt neyðarlán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Evrópusambandinu upp á 130 milljarða evra.

Ráðherrarnir settu grískum stjórnvöldum þrjú skilyrði fyrir neyðarláninu. Þau eru að bætt verði rúmlega 300 milljónum evra við niðurskurðarpakkann, að gríska þingið samþykki fyrrgreinda áætlun um helgina og að gefin verði trygging fyrir því að áætlunin haldi eftir þingkosningarnar í Grikklandi sem áformaðar eru í apríl næstkomandi.

Ráðherrarnir funda aftur á miðvikudag og ætlast til að skilyrði þeirra verði uppfyllt fyrir þann tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×