Erlent

Faðir skýtur fartölvu dóttur sinnar eftir Facebook skilaboð

Fimmtán ára stúlka í Bandaríkjunum fékk opinbera áminningu frá föður sínum um hversu mikilvægt það er að virða þá sem eru eldri en hún.

Tommy Jordan skaut níu .45 kalíbera byssukúlum með opnum oddi í fartölvu dóttur sinnar. En áður en hann tók fartölvuna af lífi las hann skilaboð sem dóttir hans birti á samskiptasíðunni Facebook.

Í skilaboðunum lýsir stúlkan óánægju sinni með að þurfa að gera húsverkin. Hún segir einnig að foreldrarnir geri henni lífið leitt. Þessi opinbera kvörtun virtist hafa farið í taugarnar á Tommy.

Titill myndbandsins er: „Facebook Parenting: For the troubled teen."

Myndbandið er rúmar 8 mínútur að lengd og Tommy eyðir meirihlutanum í að skamma dóttur sína fyrir að kvarta yfir þægilegum lífstíl sínum. Hann lýkur síðan einræðunni með því að fylla fartölvu dóttur sinnar af blýi.

Myndbandið birtist á myndbandasíðunni YouTube á miðvikudaginn og hefur síðan fengið rúm milljón áhorf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×