Erlent

Hershöfðingi myrtur í Sýrlandi

Byssumenn skutu og myrtu sýrlenskan hershöfðingja fyrir utan heimili hans í Damascus, höfuðborg Sýrlands, nú í morgun. Ekki er vitað hverjir voru að verki en árásin er talinn verða til þess að átökin í Sýrlandi, sem hafa aðallega átt sér stað í borginni Homs, munu færast nær höfuðborginni.

Sýrlenski stjórnarherinn hefur verið að reyna að bæla niður uppreisn landsmanna og hafa meðal annars skotið á óvopnaða mótmælendur. Sjálfir vilja mótmælendur meina að yfir 450 manns hafi verið drepnir í Homs síðustu daga. Þá sprakk bílasprengja í borginni Aleppo í gær með þeim afleiðingum að 28 létust og 235 slösuðust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×