Erlent

Fimm ára stúlku bjargað úr snjóflóði - lá grafin í tíu klukkustundir

Frá björgunaraðgerðum í  Restelica.
Frá björgunaraðgerðum í Restelica. Mynd / AP
Fimm ára gamalli stúlku var bjargað eftir að hún lenti í snjóflóði ásamt fjölskyldu sinni í Suður-hluta Kosovo í gær. Alls létust níu í snjóflóðinu, þar á meðal foreldrar stúlkunnar. Flóðið féll á lítið afskekkt þorp í Kosovo sem heitir Restelica, en níu heimili eyðilögðust í flóðinu. Allir hinir látnu eru skyldir stúlkunni.

Samkvæmt fréttastofu AP heyrðu björgunarmenn í stúlkunni og hringingu úr símanum hennar. Heimili hennar var undir tíu metra lagi af snjó. Hún var því næst grafin upp úr snjónum við mikinn fögnuð björgunarmanna. Hún var svo flutt á spítala nærri þorpinu afskekkta til aðhlynningar. Hún lá grafin í snjónum í tíu klukkustundir áður en henni var bjargað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×