Erlent

Danskir karlmenn dauðþreyttir á Valentínusardeginum

Danskir karlmenn eru orðnir dauðþreyttir á umstanginu í kringum Valentínusardaginn sem er í dag, 14. febrúar.

Ný könnun leiðir í ljós að aðeins 11% danskra karlmanna lítur þennan dag orðið með jákvæðum augum. Hinsvegar líta 54% karlanna daginn mjög neikvæðum augum og segja að hann sé ekkert annað en peningaplokk kaupmanna.

Danskar konur líta daginn í öðru ljósi en yfir 60% þeirra líta daginn jákvæðum augum. Þetta á einkum við um yngri konur, eða undir þrítugu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×