Erlent

Leiðtogar ESB og Kína funda í Bejing

Leiðtogar Evrópusambandsins og Kína funda í Bejing í dag. Skuldakreppan í Evrópu verður aðalumræðuefnið og hvernig Kínverjar geti komið Evrópuríkjum til aðstoðar í þeirri kreppu.

Málefni Sýrlands og Íran eru einnig líkleg umræðuefni á fundinum. Það eru þeir Herman Van Rompuy forseti Evrópusambandsins og Jose Manuel Barroso forseti framkvæmdastjórnar þess sem ræða málin við Wen Jiabao forsætisráðherra Kína.

Evrópuleiðtogarnir munu einnig hitta Hu Jantao forseta Kína að máli á morgun, miðvikudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×