Erlent

Líðandi mynd af stjörnuþokum og himintunglum

Ljósmyndarinn Randy Halverson náði ótrúlegum myndum af stjörnuþokum og halastjörnum sem flugu yfir heimabæ hans í Dakota í Bandaríkjunum.

„Það sem þið sjáið er raunverulegt," sagði Halverson. „Það er þó ekki beinlínis hægt að sjá þetta með berum augum."

Halverson tók þúsundir ljósmynda með lengdum lýsingartíma. Hann klippti síðan myndirnar saman og bjó til líðandi mynd sem sýnir himintungl og fjarlægar vetrarbrautir.

Einnig má sjá fyrirbæri á borð við norðurljós og loftsteina - ásamt tveimur hjartardýrum.

Hægt er að sjá myndbandið hér að ofan. Einnig er hægt að sjá lengri útgáfu af myndbandinu hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×