Erlent

Jarðarför Whitney Houston fer fram á laugardag

Ákveðið hefur verið að útför söngkonunnar Whitney Houston fari fram í New Jersey á laugardaginn kemur.

Útförin verður í baptistakirkjunni New Hope en sú kirkja tekur um 1.500 manns í sæti. Prestur kirkjunnar telur að mun fleiri muni reyna að útvega sér sæti í útförinni. Því mun útförinni verða sjónvarpað á risaskjá fyrir utan kirkjuna.

Að ósk móður Houston mun gospelsöngvarinn Marvin Winans flytja líkræðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×