Erlent

Krafa um hertara eftirlit með fjármálum Grikklands

Fjármálaráðherrar evrusvæðisins gera kröfu um að eftirlit með opinberum fjármálum Grikklands verði hert til muna eftir gengið verður frá nýju neyðarláni til landsins.

Grísku stjórnarflokkarnir hafa komið sér saman um aukinn niðurskurð upp á rúmlega 300 milljónir evra eins og krafist hefur verið. Nú er reiknað með að gengið verði frá 130 milljarða evra neyðarláninu á mánudaginn kemur.

Mikil spenna ríkir í samskiptum Grikklands og Þýskalands vegna málsins og hafa ráðamenn þessara landa sent hvor öðrum tóninn á síðustu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×