Erlent

Opinber rannsókn á fangelsisbrunanum í Hondúras

Opinber rannsókn er hafin í Hondúras á eldsvoðanum í fangelsinu í Comayagua en eldsvoðinn kostaði yfir 350 fanga þar lífið í gærdag. Margir fanganna brunnu eða köfuðu til dauða í klefum sínum.

Mannréttindasamtökin Human Rights Watch skella skuldinni á að fangelsið hafi verið yfirfullt af föngum eins og raunar er staðan í öllum fangelsum landsins.

Rannsóknin mun m.a. beinast að því hvort um íkveikju hafi verið að ræða eða rafmagnsbilun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×