Erlent

Lögreglan rannsakar eiganda Glasgow Rangers

Greiðslustöðvunin hjá skoska útvalsdeildarliðinu Glasgow Rangers er nú orðin að lögreglurannsókn.

Svo virðist sem eigandi liðsins, fjárfestirinn Craig Whyte, hafi stungið undan yfir 24 milljónum punda eða hátt í fimm milljörðum króna af framtíðarmiðasölu á heimaleiki liðsins næstu leiktíðirnar.

Whyte fékk lán frá liðinu sem nam þessari upphæð með veði í miðasölunni en lánið fór ekki í gegnum bankareikning Glasgow Rangers og er lögreglan að rannsaka hvað varð um þessa fjárhæð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×