Erlent

Rændu ómetanlegum fornmunum í Grikklandi

Frá Ólympíusafninu.
Frá Ólympíusafninu.
Tveir vopnaðir ræningjar yfirbuguðu öryggisvörð í Ólympíusafninu í Grikklandi í morgun og stálu þaðan ómetanlegum fornmunum.

Yfirvöld verjast fregna vegna málsins samkvæmt því sem fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins. Þar segir að mennirnir hafi ruðst inn á safnið, yfirbugað öryggisvörð, brotið sýningargler og haft um tugi muna á brott með sér. Það er ljóst að fornmunirnir eru ómetanlegir en þeir voru annarsvegar úr leir og svo bronsi.

Þetta er annað listverkaránið á tveimur mánuðum í Grikklandi. Í því fyrra var listaverki eftir Picasso stolið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×