Höfðu efasemdir um að Whitney væri sú rétta Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. febrúar 2012 18:50 Kevin Costner sagði að menn hefðu efast um að Whitney væri sú rétta fyrir Bodyguard.
Kevin Costner mótleikari Whitney Houston í Bodyguard hélt hjartnæma ræðu við útför hennar í dag. Hann sagði að framleiðendur myndarinnar hefðu upphaflega haft verulegar efasemdir um að Whitney væri rétta manneskjan í hlutverkið. Þá hefði alls ekki staðið til að lagið I will always love you væri í myndinni. „Lagið I will always love you átti ekkert að vera í myndinni. Fyrsti kosturinn var What becomes of the broken hearted," sagði Kevin Costner. Hann sagði að þegar fólk safnaðist saman með brostin hjörtu til þess að kveðja Whitney væri öllum hollt að þerra tár sín og minnast þess hversu mikið kraftaverk Whitney hefði verið. Kevin sagði að þau Whitney hefðu átt margt sameiginlegt. „Ég veit að mörg ykkar sitjið þarna og efist um þessa fullyrðingu mína. Hún er stelpa en þú ert strákur. Hún er svört en þú ert hvítur. Við höfðum heyrt af því að þér þætti gaman að syngja en Whitney kunni að syngja," sagði Kevin. Sannleikurinn væri hins vegar sá að þau ættu meira sameiginlegt en útlit var fyrir í fyrstu. Kevin sagði að Whitney hefði verið á hátindi ferils síns sem söngkona þegar hann áttaði sig á því að hún væri fullkomin í aðalhlutverk myndarinnar Bodyguard. Margir hefðu aftur á móti haft efasemdir og sumir talið að heppilegra væri að fá reyndari leikkonu. Þá hefðu sumir haft efasemdir um hana af því að hún væri svört. Kevin sagðist hafa verið þessu ósammála. „Mér fannst hún vera fullkomin fyrir það sem við ætluðum að gera," sagði Kevin. Ákvörðun var tekin um að Whitney myndi fara í prufur fyrir hlutverkið hjá kvikmyndaverinu og þar hefði hún hrifið alla sem fylgdust með. Því varð úr að hún fengi hlutverkið. „Whitney, það var ekki bara að þú værir nógu góð fyrir hlutverkið. Þú varst frábær. Þú gerðir myndina að því sem hún varð," sagði Kevin. Hann sagði að margir leikarar hefðu getað farið með aðalkarlhlutverkið í myndinni en Whitney væri eina manneskjan sem gat leikið Rachel Marron.
Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Innlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Fleiri fréttir Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Sjá meira