Erlent

Íran stöðvar olíusölu til Breta og Frakka

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Mahmoud Ahmadinejad  er forseti Íran. Íran hefur stöðvað sölu á olíu til breskra og franskra fyrirtækja.
Mahmoud Ahmadinejad er forseti Íran. Íran hefur stöðvað sölu á olíu til breskra og franskra fyrirtækja. mynd/ afp.
Íran hefur stöðvað sölu á olíu til breskra og franskra fyrirtækja. Olíumálaráðherra Írans tilkynnti þetta í dag. Aðildarríki Evrópusambandsins höfðu áður samþykkt að hætta að flytja inn olíu frá Íran frá og með 1. júlí næstkomandi. Sú ákvörðun Evrópusambandsins er tekin til þess að þrýsta á Írani að hætta tilraunum með úraníum. Slíkt efni er hægt að nota í friðsamlegum tilgangi en líka til þess að hana gereyðingarvopn. Kjarnorkustofnun Sameinuðu þjóðanna telur sig hafa upplýsingar um að Íran sé að þróa slík vopn en írönsk stjórnvöld segja að allar þróanir með úraníum séu í friðsamlegum tilgangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×