Erlent

Sprengja gerði gat á lögreglustöð í Malmö

Öflug sprengja sprakk við lögreglustöð í miðborg í Malmö í Svíþjóð um hálf þrjú leytið í nótt. Sprengingin var svo öflug að gat kom á lögreglustöðuna.

Engan sakaði þar sem lögreglustöðin var mannlaus þegar þetta átti sér stað. Byggingin er hinsvegar mikið skemmd á eftir.

Í sænskum fjölmiðlum segir að vitni hafi sé tvo dökkklædda menn koma sprengjunni fyrir en þeir flúðu síðan af vettvangi á mótorhjóli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×