Erlent

Tíbeskir munkar kveiktu i sjálfum sér

Kínverjar hertóku Tíbet árið 1950 og hafa síðan lagt hömlur á trúariðkun Tíbeta.
Kínverjar hertóku Tíbet árið 1950 og hafa síðan lagt hömlur á trúariðkun Tíbeta. mynd/AP
Þrír tíbeskir munkar kveiktu í sjálfum sér í suðvesturhluta Kína fyrr í dag. Fórnfæringarnar voru gerðar í mótmælaskyni við yfirráðum Kína yfir Tíbet.

Samkvæmt fréttamiðlum í Kína lést einn munkurinn á meðan hinir tveir lifðu af - þeir voru þó illa brenndir.

Alls hafa 19 Tíbetar kveikt í sjálfum sér á síðustu 12 mánuðum og hafa 13 af þeim látist í kjölfarið.

Kínverjar hertóku Tíbet árið 1950 og hafa síðan lagt hömlur á trúariðkun Tíbeta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×