Erlent

Þrjú prófkjör hjá Repúblikönum í dag

Prófkjör verða hjá Repúblikönum í þremur ríkjum í dag en það eru Colorado, Minnesota og Missouri.

Mitt Romney er talinn öruggur með að sigur í Colorado en Rick Santorum er með mesta fylgið í Minnesota samkvæmt skoðanakönnunum. Santorum er einnig talinn eiga góða möguleika á að sigra Romney í Missouri þar sem Newt Gingrich tekur ekki þátt í prófkjörinu þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×