Hörmungar íbúa Homs halda áfram 9. febrúar 2012 10:56
Þung stórskotahríð skall í morgun á íbúa borgarinnar Homs í Sýrlandi. Íbúarnir hafa mátt þola slíka skothríð frá stjórnarher landsins á hverjum morgni frá því um síðustu helgi. Uppreisnarmenn halda enn nokkrum hverfum Homs en hún er þriðja stærsta borg Sýrlands og helsti þyrnir í augum Assad einræðisherra landsins. Undanfarna daga hefur stjórnarherinn einbeitt sér að því að láta stórskotahríðina drynja á Baba Amr hverfið og er það nú orðið að rústum einum. Meirihluti íbúanna í hverfinu eru shia múslimar. Talið er að 13 manns hafi fallið í árásinni í morgun en alls hafa yfir 400 manns fallið í Homs það sem af er vikunni. Fregnir herma að íbúar Homs séu að þrotum komnir, matar- og vatnsskortur er orðinn að miklu vandamáli sem og skortur á lyfjum og læknisgögnum. Óstaðfestar fregnir herma að Assad hafi flutt nokkrar hersveitir að útjörðum Homs og að þær eigi endanlega að ganga á milli bols og höfuðs á uppreisnarmönnunum eftir að stórskotahríðin hefur dregið úr þeim mesta máttinn. Alþjóðasamfélagið virðist ekkert geta gert til að stöðva þessi morð á almennum borgurum í Homs.
Mest lesið Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Fleiri fréttir Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Sjá meira