Annar sjóðanna sem vill Iceland var stofnaður af Mitt Romney Magnús Halldórsson skrifar 25. janúar 2012 20:00
Tveir erlendir fjárfestingasjóðir berjast nú um verslunarkeðjuna Iceland Foods við forstjórann og stofnandann Malcolm Walker. Annar sjóðanna var stofnaður af Mitt Romney sem vinnur nú að því að verða fulltrúi Repúblikana í forsetakosningunum Bandaríkjunum síðar á árinu. Söluferlið á Iceland Foods þar sem skilanefndir Landsbankans og Glitnis fara með 77 prósent hlutafjár, stendur nú sem hæst. Fjölmiðlar í Bretlandi greindu frá því í morgun að fjárfestingasjóðir í eigu Bain Capital og BC Partners séu meðal þeirra sem vilja eignast félagið. Malcolm Walker, stofnandi félagsins, er einnig í þeim hópi, eins og greint hefur verið frá. Hann á samningsbundinn rétt til þess að eignast fyrirtækið ef hann jafnar hæsta boð sem berst í félagið í söluferlinu. Hann á enn 23 prósent hlut í félaginu. Skilanefndirnar hafa gert sér vonir um að fá 1,5 milljarða punda, jafnvirði tæplega 290 milljarða króna, fyrir Iceland Foods. Allt er þó á huldu enn hversu hátt verði kaupendur eru tilbúnir að greiða fyrir félagið. Iceland Foods er meðal verðmætustu eigna skilanefndar Landsbankans og skiptir því verulegu máli þegar kemur endurheimtum úr þrotabúinu. Hinn 64 ára gamli Romney er vellauðugur. Hann stýrði Bain Capital til ársins 1999 þegar hann hóf að helga stjórnmálum innan Repúblikanaflokksins alla sína krafta. Þegar hann hætti hjá félaginu sem forstjóri hélt hann áfram að vera hluthafi. Romney hefur verið gagnrýndur nokkuð að undanförnu fyrir að leggja heldur lítið af auði sínum til samfélagsins en af um 5 milljarða tekjum hans í fyrra greiddi hann ríflega 13 prósent skatt. Bain Capital var stofnað 1984 og er nú með rúmlega 60 milljarða dollara, um 7.400 milljarða króna, í eignastýringu.
Mest lesið Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Innlent Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Innlent Annar maður skotinn til bana af ICE Erlent Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Innlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Innlent Fleiri fréttir Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sýknaður af ásökunum um aðgerðaleysi þegar nítján börn dóu Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Var á ráðstefnunni í Davos: „Fólk andaði kannski aðeins léttar“ Sjá meira