Innlent

Engin slys á fólki - eldurinn á fyrstu hæð

Slökkviliðsmenn við fjölbýlishúsið að Grensásvegi 60 í kvöld. Engin slys urðu á fólki.
Slökkviliðsmenn við fjölbýlishúsið að Grensásvegi 60 í kvöld. Engin slys urðu á fólki. mynd/Valgarður
Eldur kom upp í íbúð á fyrstu hæð í fjölbýlishúsi á Grensásvegi rétt fyrir klukkan hálf átta í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu voru allar stöðvar sendar á staðinn. Reykkafarar fóru inn í íbúðina og slökktu eldinn. Engin slys urðu á fólki. Ein stöð er á vettvangi núna og er að reykræsta íbúðina og íbúðir í kring.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×