"Flugið verður fyrir þá ríku“ 7. janúar 2012 18:58
Einungis þeir efnameiri munu geta nýtt sér flugþjónustu innanlands þar sem opinber gjöld af hverjum flugmiða hafa meira en tvöfaldast á síðustu þremur árum. Þetta segir Framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands. Í vikunni voru tilkynntar gífurlegar hækkanir á innanlandsflugi. Til dæmis munu lendingargjöld á Reykjavíkurflugvelli hækka um 72 prósent, farþegagjöld um 71 prósent og flugleiðsögugjald um 22 prósent. Samtals munu þessar hækkanir þýða yfir 100 milljóna kostnaðaraukningu fyrir Flugfélag Íslands á þessu ári. Til stendur að hækka þessi gjöld aftur eftir ár og sér Flugfélagið fram á 150 milljóna hækkun þá. „Verð hlýtur að verða að hækka og ef þetta heldur sem horfir, að þessar miklu kostnaðarhækkanir sem við erum að fá á okkur fara út í verðlagið, þá erum við ekki lengur að tala um flugið sem almannasamgöngur heldur er það einungis á færi þeirra efnameiri að ferðast með flugi," segir Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands. Tökum dæmi um flugmiða frá Reykjavík til Akureyrar, í dag eru opinber gjöld tæp átta prósent af verði miðans, en eftir þessar hækkanir munu gjöldin fara upp í tæp tíu prósent eða yfir tólfhundruð krónur af verði miðans. Alls hafa opinber gjöld af hverjum flugmiða meira en tvöfaldast á þremur árum. Þetta segir Árni að geti ekki gengið upp og stjórnvöld séu að vega að framtíð innanlandsflugsins. „Það er verið að setja töluvert mikið af peningum bæði í vegagerð eða hafnarmannvirki á sama tíma og það er verið að skera niður í þessum málaflokki. Mér finnst flugið almennt ekki njóta sammælis miðað við aðra samgöngumáta, því það fæst varla peningur til að viðhalda þeim flugbrautum sem nú þegar eru í mikilli notkun," segir Árni að lokum.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Erlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira