Erlent

Bandaríkjamenn hætta við matvælaaðstoð til Norður Kóreu

Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa staðfest að þau muni ekki senda 240.000 tonna matvælaaðstoð til Norður Kóreu eins og samið hafði verið um.

Ástæðan er sú að Norður Kórea ætlar að skjóta gervihnetti á loft til heiðurs 100 ára afmælis Kim Il Sung fyrrum leiðtoga landsins um miðjan apríl.

Matvælaaðstoðin var skilyrt því að Norður Kórea hætti við kjarnorkuáform sín sem og tilraunum með langdrægar eldflaugar. Bandaríkjamenn telja gervihnattaskotið brot á því samkomulagi sem gert var.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×