Erlent

Stjörnufræðingar birta gagnvirkt kort af Vetrarbrautinni

Ljósmyndin er kölluð Vista Data Flow System og vonast vísindamennirnir til að hún eigi eftir að nýtast stjörnufræðingum um ókomin ár.
Ljósmyndin er kölluð Vista Data Flow System og vonast vísindamennirnir til að hún eigi eftir að nýtast stjörnufræðingum um ókomin ár. mynd/NASA
Síðustu tíu ár hafa breskir vísindamenn beint sjónaukum sínum að þéttasta fleti Vetrarbrautarinnar. Eftir að hafa unnið úr rannsóknargögnum sínum hafa vísindamennirnir nú birt risavaxna mynd af vetrarbrautinni okkar.

Myndin er samsett úr þúsundum ljósmynda sem teknar voru með hjálp stjörnusjónauka á Hawaii og í Chile.

Ljósmyndin er kölluð Vista Data Flow System og vona vísindamennirnir að hún eigi eftir að nýtast stjörnufræðingum um ókomin ár.

„Það er um það bil milljarður stjarna á myndinni," sagði Dr. Nick Cross í viðtali við breska ríkisútvarpið. „Ég rýndi í hana klukkustundum saman þegar á sá hana fyrst."

Dr. Cross og félagar einblíndu á þéttasta flöt Vetrarbrautarinnar. Á myndinni má sjá þetta svæði sem mjóa ræmu.

Myndin hefur verið birt í gagnvirku formi á veraldarvefnum. Þannig er hægt að stækka myndina að vild og skoða þau svæði sem heilla af mikilli nákvæmni.

Hægt er að nálgast myndina hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×