Erlent

Nær 50.000 Danir þurftu öryggisvottun frá leyniþjónustunni

Veruleg aukning varð á fjölda þeirra Dana sem danska leyniþjónustan gaf öryggisvottun í fyrra miðað við árið á undan.

Í frétt um málið í Avisen segir að í fyrra hafi leyniþjónustan gefið tæplega 50.000 Dönum öryggisvottun sem er fjölgun upp á um 4.000 einstaklinga frá árinu áður. Öryggisvottun þessi er gefin út fyrir þá Dani sem hafa aðgang að trúnaðarupplýsingum.

Hans Jörgen Bonnichsen fyrrum yfirmaður leyniþjónustunnar segir að þessi fjöldi Dana sem þurfi öryggisvottun sé kominn út úr öllu korti og yfirvöld þurfi að huga að því að draga úr honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×