Erlent

Leyniskjalasafn Vatikansins fyrir sjónir almennings

Vatikanið í Róm hefur opnað hluta af leyniskjalasafni sínu fyrir almenningi. Á sérstakri sýningu er að finna leyniskjöl sem eru allt frá níundu öld.

Meðal þeirra skjala sem almenningi gefst kostur á að sjá í fyrsta sinn er bréf frá Marie Antoinette drottningu Frakklands fyrir byltinguna þar í landi á seinnihluta 18. aldar. Marie er heimsfræg fyrir þau orð sín að almenningur ætti að éta kökur væri hann svangur.

Marie var í stofufangelsi og beið þess að verða hálshöggvin þegar henni tókst einhvern veginn að senda páfanum í Róm bréf þar sem hún bað hann að bjarga lífi sínu. Henni varð ekki að ósk sinni.

Þá er að finna á sýningunni 60 metra langa skinnrúllu þar sem skráð eru réttarhöldin yfir Musterisriddurunum og allir þeir glæpir sem þeir áttu að hafa framið. Einnig eru þarna skýrslurnar sem sendar voru páfanum úr réttarhöldunum yfir Galileo Galilei mannsins sem hélt því fram að jörðin snérist um sólina en ekki öfugt.

Af öðrum athyglisverðum sýningarmunum má m.a nefna skjöl um þýska munkinn Martin Luther sem lútherstrú er kennd við.

Sýningin er haldin í Capitoline safninu í Vatikaninu og stendur hún fram í september.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×