Fótbolti

PSG hefur samþykkt tilboð Valencia í Kevin Gameiro

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kevin Gameiro í leik með PSG.
Kevin Gameiro í leik með PSG. Mynd. Getty Images.
Franska liðið Paris Saint-Germain hefur samþykkt tilboð Valencia í leikmanninn Kevin Gamerio.

Valencia reyndi mikið að fá leikmanninn í sínar raðir síðasta sumar en samningar náðust ekki. Núna hefur PSG aftur á móti samþykkt tilboð félagsins í leikmanninn.

Zlatan Ibrahimovic gekk í raðir PSG á dögunum frá AC Milan og þar með minnkaði plássið fyrir Kevin Gameiro. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en líklega mun leikmaðurinn semja við félagið í næstu viku.

Gameiro lék 32 leiki fyrir PSG og skoraði í þeim 11 mörk.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×