Adriano fær ekki nýjan samning Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. nóvember 2012 16:45 Adriano á æfingu með Flamengo í síðasta mánuði. Nordic Photos / Getty Images
Knattspyrnuferill Brasilíumannsins Adriano virðist nú kominn á endastöð, í eitt skipti fyrir öll. Hann hefur verið rekinn frá tveimur félögum á jafn mörgum árum - fyrst frá Roma á Ítalíu og svo Corinthians í heimalandinu fyrir átta mánuðum síðan. Flamengo ákvað þá að taka hinn þrítuga Adriano upp á sína arma en hann hefur ekki spilað einn einasta leik með liðinu síðan þá. Adriano tilkynnti svo á mánudag að hann myndi ekki spila knattspyrnu fyrr en á næsta ári en síðan þá hafa forráðamenn Flamengo tilkynnt að hann muni ekki fá nýjan samning þegar núverandi samningur rennur út í lok þessa árs. „Hann er kominn á endastöð sem atvinnumaður í knattspyrnu," sagði Zinho, yfirmaður knattspyrnumála hjá Flamengo. „Við munum þó aldrei gefast upp á að aðstoða hann í sínu einkalífi." Adriano hefur lengi háð baráttu við þunglyndi og bakkus. Hann var boðaður á fund með forseta Flamengo í síðustu viku en mætti ekki. Hann hefur skrópað á mörgum æfingum síðan hann gekk til liðs við félagið. Brasilískir fjölmiðlar segja að hann hafi verið tíður gestur á næturklúbbum og skemmtistöðum að undanförnu. Hann var á sínum tíma einn besti framherji Evrópu þegar hann var upp á sitt besta með Inter á Ítalíu.
Fótbolti Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Fleiri fréttir Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjá meira