Erlent

Hátt í tvö þúsund heimilislausir eftir eldsvoða í Perú

Lima í Perú.
Lima í Perú.
Hátt í sexhundruð heimili urðu eldsvoða að bráð í tveimur íbúðarhverfum í Lima höfuðborg Perú í gær. Ekki er vitað til þess að nokkur hafi látið lífið en þarlend yfirvöld hafa reist tjaldbúðir fyrir rúmlega sextánhundruð manns sem misstu heimili sín.

Eldsupptök eru enn ókunn en slökkviliðsmenn börðust í fjóra tíma við eldinn áður en þeir náðu að ráða niðurlögum hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×