Erlent

Minniháttar eldgos á Nýja Sjálandi

Minniháttar eldgos hófst í Tongariro-fjalli á norðureyju Nýja Sjálands í nótt. Um tíma náðu öskustrókurinn upp í um tveggja kílómetra hæð en hefur síðan fjarað út.

Þótt ferðamenn og skátar hafi verið fluttir úr nærliggjandi þjóðgarði telja yfirvöld á Nýja Sjálandi að lítil sem engin hætta sé á ferðum en íbúum í grennd við eldfjallið hefur verið ráðlagt að halda sig innandyra til öryggis.

Tongariro gaus síðan í ágúst s.l. en hafði þá ekki gosið síðan árið 1897.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×