Biðst afsökunar á alræmdum svörtum lista í Hollywood 21. nóvember 2012 06:17 Talið er að í handriti sínu að myndinni High Noon sé Carl Forman í raun að fjalla um ástandið í Hollywood á fimmta áratugnum.
Willie Wilkerson sonur stofnenda blaðsins Hollywood Reporter hefur beðist opinberlega afsökunar á föður sínum sem birti alræmdan svartan lista um fólk í Hollywood sem talið var hallt undir kommúnisma um miðja síðustu öld. Með þessum lista föðurins, Billie Wilkerson, fór í hönd svartasta tímabilið í sögu Hollywood þar sem fleiri tugir leikstjóra, leikara og handritahöfunda voru algerlega útilokaðir frá allri vinnu við kvikmyndir. Þetta var á fimmta áratugnum en uppúr 1950 kom hin svokallaða Óameríska nefnd til sögunnar og nornaveiðar gegn meintum kommúnistum hófust á landsvísu. Meðal þeirra sem lentu á þessum svörtu listum má nefna leikstjórann Edward Dmytryk, skáldkonuna Lillian Hellmann og leikarann Zero Mostel. Handritshöfundurinn Carl Forman þurfti að flýja til Englands til að finna vinnu. Áður skrifaði hann handritið að myndinni High Noon einhverjum rómaðasta vestra sögunnar. Sú mynd fjallar um lögreglustjóra í smábæ sem allir bæjarbúar hafa snúið baki við því vá steðjar að. Talið er að myndin fjalli í raun um Hollywood á þessum tíma. Zero Mostel lék í fimm kvikmyndum árið 1951 en síðan fékk hann ekki bitastætt hlutverk á þeim vettvangi fyrr en 1967 þegar Mel Brooks réð hann í gamanmyndina The Producers. Willie segir að svarti listinn hafi verið hefnd Billie gagnvart Hollywood því honum hafi sjálfum ekki tekist að hasla sér völl sem kvikmyndaframleiðandi þar í borg. Það voru ekki allir í Hollywood á þessum árum sem voru hrifnir á þessu framtaki Billie. Nefna má að leikararnir Humphrey Bogart og Lauren Bacall ásamt leikstjóranum John Huston og fleirum stofnuðu samtök til að berjast fyrir réttindum þeirra sem lentu á svarta listanum.
Mest lesið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fleiri fréttir Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Sjá meira