Erlent

Segja að vopnahlé taki gildi í kvöld

Ísraelar og Hamas hafa komist að samkomulagi um vopnahlé og má búast við að það taki gildi klukkan sjö í kvöld að íslenskum tíma. Samkvæmt BBC hafa nærri 160 látið lífið í átökunum.

Það má hugsanlega setja fyrirvara á vopnahléð en sambærilegar fréttir voru fluttar í fjölmiðlum í gær en þá átti vopnahléð að taka gildi í gærkvöldi. Það gerðist þó ekki.

Hörð átök hafa verið í dag, meðal annars var strætisvagn sprengdur í loft upp í Tel Aviv í Ísrael í dag. Þá hafa þrettán þrettán látist á Gaza-ströndinnni í dag.

Uppfært: Vopnahléið hefur verið staðfest, en Hillary Clinton, utanríkiráðherra Bandaríkjanna og Kamel Amr, utanríkisráðherra Egyptalands, tilkynntu þetta um klukkan sex í kvöld. Stríðið hefur staðið yfir í sjö daga og hafa, eins og fyrr er greint frá, um 160 manns látið lífið í átökunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×