Lögreglan kölluð til vegna brimbrettakonu BBI skrifar 21. október 2012 19:55 Mynd úr safni.
Það vakti mikla athygli í Íran þegar brimbrettakonan Easkey Britton vippaði sér út í sjóinn og greip nokkrar öldur úti fyrir ströndum landsins á dögunum. Íranir eru ekki vanir því að konur leiki sér á brimbrettum og því kom ekki á óvart þegar einhver hringdi á lögregluna sem mætti í öllu sínu veldi vegna uppátækisins. Hins írska Easkey Britton er margfaldur meistari í brimbrettaíþróttinni. Hún ákvað að heimsækja Íran til þess að vekja athygli fólks á brimbrettaíþróttinni og ekki síst fá fleiri stúlkur til að prufa sportið. „Það voru allir rosalega indælir. Meira að segja lögreglan hafði aðallega áhyggjur af því að ég myndi lenda á klettum og meiða mig," segir Easkey. Hún ákvað að vera í sérhönnuðum blautbúning með áfastri slæðu (e. hijab) meðan hún renndi sér á brimbrettinu til þess að sýna fullkomna virðingu. „Það var líklega það erfiðasta, að vera með slæðuna í þessum hita. Ég er viss um að þetta hefði verið fínt ef ég hefði bara skellt mér í stuttbuxum," segir hún. Hún ákvað með sjálfri sér að heimsækja Íran, fékk vinkonu sína til að gera heimildarmynd um ferðina og mætti svo bara á staðinn án þess að gera boð á undan sér. „Þetta var bara tilraun til að vera á brimbretti þar sem engin kona hafði 'surfað' áður," sagði hún. Með uppátækinu vill hún vekja athygli kvenna á íþróttinni. „Brimbrettaíþróttin getur verið svo miklu meira en bara tómstundagaman. Þetta er ágætis tæki til að opna lífið upp fyrir konum og stúlkum og gefa þeim tækifæri," segir hún. Frá þessu var sagt í blaðinu The Guardian.
Mest lesið Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Erlent Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Erlent Fleiri fréttir Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Sjá meira