Bráðabirgðastjórn Egypta segir af sér vegna mótmæla 22. nóvember 2011 07:00 Mótmælendurnir hafa skotið steinum úr teygjubyssum og kastað eldsprengjum að brynvarinni lögreglu. Á móti skýtur lögregla táragashylkjum og gúmmíkúlum. Á þriðja tug liggja nú í valnum.Fréttablaðið/ap
Bráðabirgðastjórnin sem ríkt hefur undanfarna mánuði í Egyptalandi sagði af sér í gær í skugga mikillar mótmælaöldu sem staðið hefur frá því á laugardag. Stjórnin hefur sætt mikilli gagnrýni fyrir dugleysi og undirlægjuhátt í samskiptum við herinn. Samhliða uppsögninni lýsti hún því yfir að hún hygðist þó áfram fara með daglega stjórn landsins þar til ákveðið yrði hvernig brugðist skyldi við. Öryggissveitir herforingjastjórnarinnar köstuðu táragashylkjum inn á Tahrir-torgið í Kaíró í gær og börðust þar við þúsundir mótmælenda þriðja daginn í röð. Átökin hafa kostað að minnsta kosti 24 lífið. Mótmælendur, flestir ungir aðgerðasinnar, halda til streitu kröfum sínum um að herforingjastjórnin láti völdin í hendur borgaralegrar ríkisstjórnar. Harðir bardagar hafa geisað á torginu, mótmælendur kasta steinum og eldsprengjum að svartklæddri lögreglunni, sem svarar með gúmmíkúlnahríð. Á sunnudagskvöld gerði lögreglan atlögu að mótmælendum í því skyni að rýma torgið. Það mistókst. Stanslaus straumur slasaðra mótmælenda var inni í bráðabirgðaskýli á gangstéttunum umhverfis torgið þar sem sjálfboðaliðar gerðu að sárum þeirra. Mótmælin hófust á laugardag, viku fyrir fyrstu þingkosningarnar í landinu eftir að Hosní Múbarak var hrakinn frá völdum í ársbyrjun. Vonir höfðu staðið til að kosningarnar yrðu fyrsta skrefið í átt að því að raunverulegt lýðræði kæmist á í Egyptalandi. Þess í stað hafa kosningarnar fallið í skuggann af vaxandi reiði í garð herforingjastjórnarinnar, sem mótmælendur saka um að þokast óðum í átt að sams konar einræðistilburðum og einkenndu stjórnarhætti Múbaraks. Þeir óttast jafnframt að herforingjastjórnin muni áfram ríkja yfir þeirri stjórn sem tekur við að kosningunum loknum, líkt og verið hefur með bráðabirgðastjórnina undanfarna mánuði. Herinn hefur sagt að hann muni ekki draga sig í hlé fyrr en eftir forsetakosningarnar, sem hefur verið gefið í skyn að verði haldnar í lok 2012 eða snemma árs 2013. Starfsmaður líkhúss í Kaíró staðfesti í gær að minnst 24 hefðu látist í mótmælunum, þar af fimm frá miðnætti á sunnudag. Að sögn lækna við torgið hafa hundruð manna leitað sér aðhlynningar. Einn þeirra kveðst sinna 80 manns á hverri klukkustund. Mest sé um fólk með eymsli í augum og hálsi af völdum táragass og sár í andliti eftir gúmmíkúlur. Nokkrir hafa misst augu af völdum slíkra skota. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Innlent Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Sjá meira